Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

16. ágúst 2022 kl. 13:00,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Leiru­tangi 13A - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi202205045

    Skipulagsnefnd samþykkti á 567. fundi sínum að grenndarkynna byggingaráform og byggingarleyfi fyrir stækkun og viðbyggingu húss að Leirutanga 13A í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áformin voru kynnt á vef c og með kynningarbréfi og gögnum sem send voru til nærliggjandi húsa, Leirutanga 11A, 11B, 13A, 13B, 15, 17A, 17B, 21A, 21B, 35A, 35B, 37A, 37B, 39A, 39B, 43A og 43B. Athugasemdafrestur var frá 05.07.2022 til og með 02.08.2022. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við kynnt áform, með vís­an í 4. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, teljast áformin sam­þykkt og er bygg­ing­ar­full­trúa heim­ilt að gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.

  • 2. Arn­ar­tangi 44 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi202206296

    Skipulagsnefnd samþykkti á 568. fundi sínum að grenndarkynna byggingarleyfi fyrir þegar byggða stækkun húss að Arnartanga 44 í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Viðbygging var kynnt á vef Mosfellsbæjar, mos.is, og með kynningarbréfi og gögnum sem send voru til nærliggjandi húsa, Arnartanga 41, 42, 44, 46, 48 og 50. Athugasemdafrestur var frá 30.06.2022 til og með 03.08.2022. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við kynningu, með vís­an í 4. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, teljast áformin sam­þykkt og er bygg­ing­ar­full­trúa heim­ilt að gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.

Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 13:15