10. febrúar 2022 kl. 15:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Reykjahvoll 29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202111059
Skjaldargjá ehf. Rauðarárstíg 42 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri og steinsteypu tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Reykjahvoll nr. 29, í samræmi við framlögð gögn.Stærðir: Íbúð 222,9 m², bílgeymsla 32,5 m², m³.
Samþykkt.
Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
2. Laxatunga 117,117a,117b, Umsókn um byggingarleyfi.201809343
VK Verkfræðistofa Suðurlandsbraut 46 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta raðhúsa á lóðunum Laxatunga nr. 117, 117a og 117b, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt