21. mars 2023 kl. 16:30,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Sævar Birgisson (SB) formaður
- Jóna Guðrún Kristinsdóttir (JGK) varaformaður
- Davíð Örn Guðnason (DÖG) aðalmaður
- Rúnar Már Jónatansson (RMJ) aðalmaður
- Brynja Hlíf Hjaltadóttir (BHH) aðalmaður
- Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) áheyrnarfulltrúi
- Kristín Nanna Vilhelmsdóttir (KNV) áheyrnarfulltrúi
- Arnar Jónsson forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
Fundargerð ritaði
Arnar Jónsson forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Skipulagsmál og atvinnusvæði í Mosfellsbæ202303605
Skipulagsfulltrúi greinir frá skipulagsmálum og helstu atvinnusvæðum í Mosfellsbæ.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd þakkar skipulagsfulltrúa fyrir kynningu á helstu atvinnusvæðum í Mosfellsbæ og bendir á mikilvægi skipulagsmála þegar kemur að atvinnu- og nýsköpunarmálum.
Gestir
- Björn H Reynisson
- Kristinn Pálsson
2. Atvinnu- og nýsköpunarstefna202211413
Undirbúningur opins fundar nefndarinnar og ákvörðun um tímasetningu fundarins. Vinna með ráðgjafa að greiningu og stöðumati vegna undirbúnings mótunar atvinnu- og nýsköpunarstefnu.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd samþykkir að halda opinn fund um atvinnu- og nýsköpunarmál til undirbúnings stefnumótunar 16. maí næstkomandi og þakkar Birni H Reynissyni fyrir kynningu á mögulegri skipulagningu fundarins.
Gestir
- Björn H Reynisson