18. september 2024 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Hamrabrekkur 3 - Umsókn um byggingarleyfi202407009
Þórhallur Halldórsson Kvíslartungu 33 sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu og timbri tveggja hæða frístundahús á lóðinni Hamrabrekkur nr. 3 í samræmi við framlögð gögn. Umsókn um byggingarleyfi var grenndarkynnt, grenndarkynningu lauk 6.09.2024, engar athugasemdir bárust. Stærðir: 130,0 m², 539,5 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
2. Vogatunga 103 - 107 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3,202311142
Íris Ósk Gunnarsdóttir Vogatungu 105 sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta vegna lóðarfrágangs á lóðinni Vogatunga nr. 103-107 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
3. Þrastarhöfði 37 - Fyrirspurn til byggingarfulltrúa202408344
Geir Gunnar Geirsson Þrastarhöfða 37 leggur fram fyrirspurn vegna viðbyggingar úr málmi og gleri við einbýlishús á lóðinni Þrastarhöfði nr. 37 í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 15,2 m², 46,1 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa þar sem breyting er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag á svæðinu.