5. júlí 2019 kl. 13:00,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Katrín Sif Oddgeirsdóttir aðalmaður
- Regína Hansen Guðbjörnsdóttir aðalmaður
- Karl Alex Árnason aðalmaður
- Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir varamaður
- Sveinbjörn Benedikt Eggertsson varamaður
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir fjölskyldusvið
Fundargerð ritaði
Sigurbjörg Fjölnisdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Notendaráð um málefni fatlaðs fólks201806289
Fulltrúar í notendaráði kynna sig. Formaður kosinn. Fundartímar ákveðnir.
1. Fundarmenn kynna sig.
2. Katrín Sif kjörinn formaður ráðsins með öllum samþykktum atkvæðum.
3. Ákveðið að fundardagar verði fimmtudagar kl. 15, fyrsta fimmtudag í þeim mánuði sem fundur verður haldinn.
Almenn erindi - umsagnir og vísanir
2. GEF-Starfsleyfi-beiðni um umsögn notendaráðs fatlaðs fólks201906237
Beiðni um umsögn notendaráðs fatlaðs fólks.
Notendaráð Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps er mjög jákvætt gagnvart því að NPA miðstöðin fái starfsleyfi vegna NPA þjónustu og sér ekkert því til fyrirstöðu annað en að GEF veiti þeim starfsleyfi.
3. Reglur um NPA 2019201905102
Nýjar reglur Mosfellsbæjar um NPA lagðar fyrir notendaráð fatlaðs fólks til umsagnar.
Farið yfir reglur Mosfellsbæjar um NPA.
Bætt inn "að jafnaði" í d. lið 1. mgr. 4. gr.
Lítilsháttar orðalagsbreytingar gerðar.
Að öðru leyti voru ekki gerðar athugasemdir við reglurnar.