16. desember 2022 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Grenibyggð 22-24 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202211363
Dagný Tómasdóttir Grenibyggð 22 sækir um leyfi til breytinga útlits, innra skipulags og skráningar parhúss á lóðinni Grenibyggð nr. 22-24, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Byggingarfulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
2. Helgadalsvegur 60 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202107128
Jens Páll Hafsteinsson Köldulind 6 Kópavogi sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta einbýlishúss með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Helgadalsvegur nr. 60, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 82,2 m², gróðurhús 32,8 m² bílgeymsla 150,0 m², 974,9 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.