22. október 2020 kl. 14:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Fossatunga 2-6 - breyting á deiliskipulagi202006216
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar samþykkti á 520. fundi nefndarinnar að deilskipulagsbreyting fyrir Fossatungu 2-6 yrði auglýst skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var kynnt með dreifibréfi grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga sem borið var út til íbúa eða lóðarhafa að Fossatungu 1-7, 2-6 og Kvíslartungu 128, 130 og 132. Breytingin var einnig kynnt á vef sveitarfélagsins, mos.is, en uppdrættir voru bæði aðgengilegir á vef sem og á upplýsingatorgi Mosfellsbæjar að Þverholti 2. Athugasemdafrestur var frá 21.08.2020 til og með 25.09.2020. Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugasemdir bárust við tillöguna, með vísan í 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa, skoðast tillagan samþykkt og mun skipulagsfulltrúi annast gildistöku hennar skv. 42. gr. skipulagslaga.
Málsaðili skal greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.2. Fossatunga 9-15 - breyting á deiliskipulagi202007361
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar samþykkti á 520. fundi nefndarinnar að deilskipulagsbreyting fyrir Fossatungu 2-6 yrði auglýst skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var kynnt með dreifibréfi grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga sem borið var út til íbúa eða lóðarhafa að Fossatungu 1-7, 9-15 og 17-19. Breytingin var einnig kynnt á vef sveitarfélagsins, mos.is, en uppdrættir voru bæði aðgengilegir á vef sem og á upplýsingatorgi Mosfellsbæjar að Þverholti 2. Athugasemdafrestur var frá 21.08.2020 til og með 25.09.2020. Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugasemdir bárust við tillöguna, með vísan í 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa, skoðast tillagan samþykkt og mun skipulagsfulltrúi annast gildistöku hennar skv. 42. gr. skipulagslaga.
Málsaðili skal greiða þann kostnað sem af breytingunni hlýst.