17. ágúst 2020 kl. 14:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Ómar Þröstur Björgólfsson umhverfissvið
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon Byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Bugðufljót 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202007219
Karina ehf. Breiðahvarfi 5 Kópavogi um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Bugðufljót nr. 9, í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 318,9 m², 1.823,8 m³.
Samþykkt
2. Hraðastaðavegur 17, Umsókn um byggingarleyfi.201806054
Kjartan Jónsson Hraðastaðavegi 17 sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta einbýlishúss á lóðinni Hraðastaðavegur nr. 17, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt
3. Reykjahvoll 25, Umsókn um byggingarleyfi202006073
Vígmundur Pálmarsson, Reykjahvol 25 sækir um leyfi til að byggja úr stáli geymsluhús á lóðinni Reykjahvoll nr. 25 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 30 m², 117,5 m³
Synjað þar sem áformin samræmast ekki gildandi deiliskipulagsskilmálum.
4. Súluhöfði 34 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202005115
Daði Már Jónsson Heiðarbrún 100 Hveragerði sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Súluhöfði nr. 34, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 194,6 m², bílgeymsla 46,5 m², 860,2 m³.
Samþykkt