Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

28. maí 2024 kl. 10:00,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
  • Þór Sigurþórsson

Fundargerð ritaði

Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Birki­teig­ur 1 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild - Flokk­ur 1202405091

    Ólafur Gestur Arnalds Birkiteig 1 sækir um leyfi til breytinga útfærslu veggsvala á einbýlishúsi á lóðinni Birkiteigur nr. 1 í samræmi við framlögð gögn.

    Sam­þykkt.

    • 2. Hamra­brekk­ur 4 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild - Flokk­ur 1,202401588

      Egill Þórir Einarsson Vættaborgum 38 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri frístundahús á lóðinni Hamrabrekkur nr. 4 í samræmi við framlögð gögn. Umsókn um byggingarheimild var grenndarkynnt, athugasemdafrestur var frá 27.03.2024 til og með 30.04.2024, engar athugasemdir bárust. Stærðir: 129,9 m², 378,0 m³.

      Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.

      • 3. Huldugata 6-8 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2,202404339

        Byggingafélagið Bakki ehf. Þverholti 2 sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu þriggja hæða 30 íbúða fjölbýlishús á lóðinni Huldugata nr. 6-8, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 1. hæð 828,2 m², 2.408,1 m³. 2. hæð 747,0 m², 2.207,2 m³. 3. hæð 747,0 m², 2.207,2 m³. Samtals: 2.322,2 m², 7.221,0 m³.

        Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.

        • 4. Litlikriki 39 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2,202404634

          Sigurður Eggert Ingason Litlakrika 39 sækir um leyfi til breytinga innra skipulags tveggja hæða einbýlishúss á lóðinni Litlikriki nr. 39 í samræmi við framlögð gögn.

          Synjað þar sem um­sókn um bygg­ingaráform sam­ræm­ist ekki ákvæð­um gild­andi deili­skipu­lags varð­andi fjölda íbúða.

          Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00