10. júlí 2007 kl. 07:00,
bæjarráðssalur
Fundinn sátu
Fundargerð ritaði
Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Helgafellshverfi, deiliskipulag 4. áfanga200702058
Lögð verður fram tillaga Nexus arkitekta að deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu.
Lögð fram tillaga Nexus arkitekta að deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu.%0DNefndin leggur til að tillagan með þeim breytingum og leiðréttingum sem ræddar voru á fundinum verði samþykkt til kynningar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.
2. Miðdalsland II við Silungatjörn ósk um deiliskipulag200706114
Margrét Guðjónsdóttir og Kjartan Óskarsson óska þann 7. júní eftir að fá að deiliskipuleggja land við Silungatjörn, sem þau eru kaupréttarhafar að, undir frístundahús. Landið er ekki skilgreint fyrir frístundabyggð í aðalskipulagi. Áður á dagskrá 203. fundar.
Margrét Guðjónsdóttir og Kjartan Óskarsson óska þann 7. júní eftir að fá að deiliskipuleggja land við Silungatjörn, sem þau eru kaupréttarhafar að, undir frístundahús. Landið er ekki skilgreint fyrir frístundabyggð í aðalskipulagi. Áður á dagskrá 203. fundar.%0DFrestað.
3. Krókatjörn, Miðdalsl. nr. 125142 - fyrirspurn um byggingu frístundahúss200707023
Ívar Örn Guðmundsson f.h. Hrannar Hrafnsdóttur spyrst fyrir um möguleika á því að byggja nýtt frístundahús á lóðinni í stað núverandi húss. Erindinu fylgir tölvupóstur frá Skipulagsstofnun, þar sem bent er á þann möguleika að fá undanþágu til að byggja nær vatninu en 50 m, sbr. skipulagsreglugerð, en jafnframt mælt með því að spursmálið verði skoðað í stærra samhengi.
Ívar Örn Guðmundsson f.h. Hrannar Hrafnsdóttur spyrst fyrir um möguleika á því að byggja nýtt frístundahús á lóðinni í stað núverandi húss. Erindinu fylgir tölvupóstur frá Skipulagsstofnun, þar sem bent er á þann möguleika að fá undanþágu til að byggja nær vatninu en 50 m, sbr. skipulagsreglugerð.%0DNefndin er neikvæð gagnvart því að leita eftir undanþágu frá þeirri reglu að frístundahús skulu vera minnst 50 m frá vötnum.
4. Breyting á deiliskipulag Roðamóa 1-11200603132
Tekið fyrir að nýju, sbr. bókun á 202. fundi. Lögð fram umsögn Vegagerðar, sem óskar eftir því að veghelgunarsvæði verði 30 m frá miðlínu Þingvallavegar í stað 15 m eins og tillagan gerir ráð fyrir. Einng eru gerðar athugasemdir um vegtengingu við Þingvallaveg.
Tekið fyrir að nýju, sbr. bókun á 202. fundi. Lögð fram umsögn Vegagerðar, sem óskar eftir því að veghelgunarsvæði verði 30 m frá miðlínu Þingvallavegar í stað 15 m eins og tillagan gerir ráð fyrir. Einng eru gerðar athugasemdir um vegtengingu við Þingvallaveg.%0DNefndin leggur til að lóðamörk verði færð þannig að þau verði 30 m frá miðlínu Þingvallavegar. Hún bendir hinsvegar á að í aðalskipulagi er gert ráð fyrir tengingu við Þingvallaveg á þeim stað þar sem hún er í deiliskipulaginu.
5. Í landi Laxness, fyrirspurn vegna endurbyggingar200509150
Gunnar Borgarsson arkitekt f.h. Emils Péturssonar óskar þann 4. júlí 2007 eftir því að meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagi fyrir land Lækjarness verði samþykkt.
Gunnar Borgarsson arkitekt f.h. Emils Péturssonar óskar þann 4. júlí 2007 eftir því að meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagi fyrir land Lækjarness verði samþykkt.%0DUmræður, afgreiðslu frestað.
6. Brattahlíð 12, ósk um breytingu á deiliskipulagi200608156
Guðjón Magnússon arkitekt f.h. Níelsar Sigurðar Olgeirssonar óskar þann 3. júlí 2007 eftir því að meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagi verði tekin til meðferðar og samþykktar. Skv. tillögunni er lóðinni skipt upp í tvær einbýlislóðir.
Guðjón Magnússon arkitekt f.h. Níelsar Sigurðar Olgeirssonar óskar þann 3. júlí 2007 eftir því að meðfylgjandi tillaga að deiliskipulagi verði tekin til meðferðar og samþykktar. Skv. tillögunni er lóðinni skipt upp í tvær einbýlislóðir.%0DStarfsmönnum falið að ræða við umsækjanda um að lóðarmörkum verði breytt lítillega í tillögunni til að auka pláss fyrir göngustíg.
7. Grenibyggð 10, umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu milli húss og bílskúrs200705099
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu lauk þann 28. júní, engin athugasemd barst.
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu lauk þann 28. júní, engin athugasemd barst.%0DNefndin samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa frekari afgreiðslu erindisins.
8. Grenibyggð 20, umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu milli húss og bílskúrs200705102
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu er lokið, engin athugasemd barst.
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu er lokið, engin athugasemd barst.%0DNefndin samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa frekari afgreiðslu erindisins.
9. Bjarkarholt 3 umsókn um stækkun á gróðurhúsi200703024
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu lauk þann 28. júní, engin athugasemd barst.
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu lauk þann 28. júní, engin athugasemd barst.%0DNefndin samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa frekari afgreiðslu erindisins.
10. Akurholt 18, fyrirspurn um viðbyggingu200703191
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu lauk þann 28. júní, engin athugasemd barst.
Grenndarkynningu á tillögu um viðbyggingu lauk þann 28. júní, engin athugasemd barst.%0DNefndin samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa frekari afgreiðslu erindisins.
11. Skuggabakki 12 umsókn um stækkun200706113
Eysteinn Leifsson sækir þann 11. júní 2007 um að fá að breikka hesthús að Skuggabakka 12 Varmárbökkum, og stækka efri hæð þess. Áður á dagskrá 203. fundar.
Eysteinn Leifsson sækir þann 11. júní 2007 um að fá að breikka hesthús að Skuggabakka 12 Varmárbökkum, og stækka efri hæð þess. Áður á dagskrá 203. fundar.%0DStarfsmönnum falið að ræða við umsækjanda.
12. Helgafell 1, 1a og 1b, fyrirspurn um byggingu á þreföldum bílskúr200706235
Helgi þór Eiríksson, Arnar Hauksson og Níels Einar Reynisson sækja þann 27. júní um leyfi til að byggja þrefaldan bílskúr skv. meðf. teikningum norðan íbúðarhússins Helgafells 1.
Helgi þór Eiríksson, Arnar Hauksson og Níels Einar Reynisson sækja þann 27. júní um leyfi til að byggja þrefaldan bílskúr skv. meðf. teikningum norðan íbúðarhússins Helgafells 1.%0DNefndin gerir athugasemd við stærð bílageymslunnar og óskar eftir að staðsetning hennar verði skoðuð í samhengi við deiliskipulag svæðisins.
13. Ásland 22a, fyrirspurn um fjölgun íbúða.200706248
Sigurður Long Jakobsson óskar þann 25. júní eftir fá að gera rými á neðri hæð hússins að sérstakri íbúð.
Sigurður Long Jakobsson óskar þann 25. júní eftir fá að gera rými á neðri hæð hússins að sérstakri íbúð.%0DNefndin er neikvæð gagnvart fyrirspurninni.
14. Hamratangi 2 umsókn um stækkun200707019
Ásdís Eiðsdóttir og Haraldur Örn Arnarson sækja þann 4. júlí 2007 um leyfi til að byggja 26 m2 viðbyggingu við húsið skv. meðf. teikningu.
Ásdís Eiðsdóttir og Haraldur Örn Arnarson sækja þann 4. júlí 2007 um leyfi til að byggja 26 m2 viðbyggingu við húsið skv. meðf. teikningu.%0DNefndin óskar eftir umsögn skipulagshöfundar um erindið.
15. Grenibyggð 38 umsókn um niðurrif á húsi200707026
Unnur Valdemarsdóttir sækir þann 5. júlí 2007 um leyfi til að rífa húsið vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar á lóðinni.
Unnur Valdemarsdóttir sækir þann 5. júlí 2007 um leyfi til að rífa húsið vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar á lóðinni.%0DSamþykkt.
16. Helgafellsland - deiliskipulag tengibrautar200608199
Vegna framkominna óska um framlengingu athugasemdafrests vegna tillögu að deiliskipulagi Helgafellsvegar vill nefndin taka fram að hún telur ekki rök fyrir slíkri framlengingu.
Fundargerðir til kynningar
17. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 138200707006F
Lagt fram til kynningar.