19. ágúst 2021 kl. 16:15,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Bjartur Steingrímsson formaður
- Kristín Ýr Pálmarsdóttir (KÝP) varaformaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) aðalmaður
- Unnar Karl Jónsson aðalmaður
- Michele Rebora (MR) aðalmaður
- Tómas Guðberg Gíslason umhverfissvið
- Bjarni Ásgeirsson umhverfissvið
Fundargerð ritaði
Tómas G. Gíslason umhverfisstjóri
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2021202108379
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2021 og farið í vettvangsferð til að skoða fallega garða sem tilnefndir voru til umhverfisviðurkenninga.
Umhverfisnefnd fór í vettvangsferð til að skoða fallega garða sem tilnefndir voru til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar árið 2021. Umhverfisnefnd hefur ákveðið að veita einum garði umhverfisviðurkenningu ársins 2021 og fylgja upplýsingar um verðlaunahafa með í sérstöku minnisblaði.
2. Áform um friðlýsingu Blikastaðakróar-Leirvogs202107116
Erindi Umhverfisstofnunar, dags. 9. júlí 2021, þar sem áform um friðlýsingu Blikastaðakróar-Leirvogs eru kynnt. Á 1497. fundi bæjarráðs var samþykkt að vísa málinu til umsagnar og afgreiðslu umhverfisnefndar.
Umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við áform um friðlýsingu Leiruvogar.