4. desember 2014 kl. 07:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Bryndís Haraldsdóttir (BH) formaður
- Hafsteinn Pálsson (HP) varaformaður
- Bjarki Bjarnason (BBj) áheyrnarfulltrúi
- Sigrún H. Pálsdóttir (SHP) áheyrnarfulltrúi
- Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) varamaður
- Haraldur Sverrisson bæjarstjóri
- Aldís Stefánsdóttir (ASt) forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
Fundargerð ritaði
Aldís Stefánsdóttir forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Erindi Margrétar Jakobínu Ólafsdóttur fyrir hönd íbúa að Miðholti 13201408187
Umbeðin umsögn um erindi Margrétar Jakobínu Ólafsdóttur fyrir hönd íbúa að Miðholti 13 varðandi umhirðu leikvallar sem liggur að lóð Miðholts 13.
Samþykkt með þremur atkvæðum að fela framkvæmdarstjóra Umhverfissviðs að svara bréfritara í samræmi við framlagt minnisblað.
2. Grjótnám í Seljadal, kæra til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á veitingu framkvæmdaleyfis201411198
Lögð fram kæra til ÚUA og greinargerð Lex lögmanna f.h. Mosfellsbæjar.
Lagt fram.
3. Hlégarður201404362
Lagt fram minnisblað forstöðumanns þjónustu- og samskiptadeildar varðandi heimild til samningagerðar vegna reksturs í Hlégarði.
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila forstöðumanni þjónustu- og samskiptadeildar að ganga til samninga um rekstur Hlégarðs.
4. Erindi BSRB vegna uppgjörs á sérstakri desemberuppbót2013081983
Minnisblað mannauðsstjóra um niðurstöðu félagsdóms.
Lagt fram.
5. Rekstur deilda janúar til október 2014201412023
Rekstraryfirlit A og B hluta Mosfellsbæjar fyrir tímabilið janúar til október.
Lagt fram.
6. Erindi lögreglustjórans, umsagnarbeiðni vegna rekstarleyfis201412016
Erindi lögreglustjórans, umsagnarbeiðni vegna rekstarleyfis
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa málinu til skipulagsnefndar til umsagnar.
7. Erindi Alþingis vegna umsagnar um tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Vestmannaeyjaflugvöll og Ísafjarðarflugvöll, 121. mál201411244
Erindi Alþingis vegna umsagnar um tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Vestmannaeyjaflugvöll og Ísafjarðarflugvöll, 121. mál.
Lagt fram.
8. Erindi Alþingis vegna umsagnar um tillögu til þingsályktunar um kaup ríkisins á Grímstöðum á Fjöllum, 55. mál201411253
Erindi Alþingis vegna umsagnar um tillögu til þingsályktunar um kaup ríkisins á Grímstöðum á Fjöllum, 55. mál
Lagt fram.
9. Erindi Alþingis vegna umsagnar frumvarps Velferðarnefndar Alþingis til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna), 211. mál201412024
Erindi Alþingis vegna umsagnar frumvarps Velferðarnefnd Alþingis til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna), 211. mál
Samþykkt með þremur atkvæðum að óska eftir umsögn framkvæmdarstjóra fjölskyldusviðs og að umsögnin verði lögð fyrir fjölskyldunefnd.
10. Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um dag helgaðan fræðslu um mannréttindi barna201412018
Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um dag helgaðan fræðslu um mannréttindi barna
Lagt fram.
11. Erindi Alþingis varðandi umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar201412019
Erindi Alþingis varðandi umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar
Lagt fram.
12. Erindi Alþingis varðandi umsögn Velferðarnefndar Alþingis varðandi umsögn um frumvarp til laga um 40 stunda vinnuviku o.fl. (færsla frídaga að helgum), 258. mál201412020
Erindi Alþingis varðandi umsögn Velferðarnefndar Alþingis varðandi umsögn um frumvarp til laga um 40 stunda vinnuviku o.fl. (færsla frídaga að helgum), 258. mál
Lagt fram.