jumpToMain
mos.is - home

20 month-5 2025 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell


Fundinn sátu

  • Valdimar Birgisson (VBi) formaður
  • Sævar Birgisson (SB) varaformaður
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Helga Jóhannesdóttir (HJó) aðalmaður
  • Ómar Ingþórsson (ÓI) aðalmaður
  • Guðmundur Hreinsson (GH) áheyrnarfulltrúi
  • Jóhanna Björg Hansen sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Arna Kristín Hilmarsdóttir verkefnastjóri
  • Lára Dröfn Gunnarsdóttir verkefnastjóri

Fundargerð ritaði

Arna Kristín Hilmarsdóttir starfsmaður á umhverfissviði


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Af­mörk­un vatns­vernd­ar í Mos­fells­dal - end­ur­skoð­un vatns­vernd­ar­marka í Lax­nes­dýj­um202412332

    Lagt fram til kynningar og umfjöllunar málefni og afmörkun vatnsverndar í Mosfellsdal.

    Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að vísa máli og er­indi þess efn­is til Sam­taka sveit­ar­fé­laga á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á vett­vang svæð­is­skipu­lags­nefnd­ar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins vegna vatns­vernd­ar.

    • 2. Varmár­völl­ur - deili­skipu­lags­breyt­ing202506380

      Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu deiliskipulagsbreyting fyrir íþróttasvæðið að Varmá. Breytingin felur í sér tilfærslu og hönnun nýs gervigrasvallar auk girðinga, lýsingar og markatöflu. Samhliða hliðrun vallar eru gerðar breytingar á byggingarreit stúku sem færist samsíða til suðausturs. Innfærðar eru áætlanir um nýtt tartan frjálsíþróttasvæði og hlaupabraut. Byggingarheimildir þjónustubyggingar eru einnig hækkaðar upp í 1.800 m2, í samræmi við gögn.

      Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að til­laga að nýju deili­skipu­lagi verði kynnt og aug­lýst í sam­ræmi við 1. mgr. 43. og 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

      • 3. Íveru­hús á lóð - stefna og leið­bein­ing­arit202506011

        Lögð eru fram til kynningar og afgreiðslu drög og tillaga skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar á verklagsreglum og ákvæðum fyrir ný íveruhús á sérbýlishúsalóðum í þéttbýlinu. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

        Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að fyr­ir­liggj­andi til­laga skipu­lags­full­trúa verði nýtt sem sam­þykkt og regl­ur stjórn­sýsl­unn­ar við af­greiðsl­ur og um­sýslu er­inda nýrra íveru­húsa á sér­býl­is­húsa­lóð­um. Unn­ið skal í sam­ræmi við leið­bein­ing­arit þar til því verð­ur breytt í nefnd­inni eða frá því horf­ið.

      • 4. Bjarg­slund­ur 8 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1202504090

        Lögð er fram til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa, í formi tillögu að reglum og ákvæðum, í samræmi við afgreiðslu á 630. fundi skipulagsnefndar. Hjálögð er umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa til afgreiðslu. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

        Með vís­an í nýja stefnu og leið­bein­ing­arit um íveru­hús á lóð sam­þykk­ir skipu­lags­nefnd með fimm at­kvæð­um að heim­ila máls­að­ila að vinna breyt­ingu á deili­skipu­lagi sam­kvæmt 2. mgr. 38. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. sömu laga. Skipu­lags­full­trúa er fal­ið að kynna og aug­lýsa breyt­ing­una í takt við verklags­regl­ur þeg­ar full­nægj­andi gögn hafa borist.

        • 5. Súlu­höfði 39 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2202504003

          Lögð er fram til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa, í formi tillögu að reglum og ákvæðum, í samræmi við afgreiðslu á 630. fundi skipulagsnefndar. Hjálögð er umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa til afgreiðslu. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

          Með vís­an í nýja stefnu og leið­bein­ing­arit um íveru­hús á lóð sam­þykk­ir skipu­lags­nefnd með fimm at­kvæð­um að heim­ila máls­að­ila að vinna breyt­ingu á deili­skipu­lagi sam­kvæmt 2. mgr. 38. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. sömu laga. Skipu­lags­full­trúa er fal­ið að kynna og aug­lýsa breyt­ing­una í takt við verklags­regl­ur þeg­ar full­nægj­andi gögn hafa borist.

          • 6. Fells­hlíð við Helga­fell - deili­skipu­lag202405235

            Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Fellshlíð. Tillagan felur í sér byggingarheimildir fyrir tvö aukahús á lóð auk vinnustofu/bílgeymslu á þremur byggingarreitum. Innfærð er grenndarkynnt stækkun á núverandi íbúðarhúsi. Viðbættar byggingarheimildir nema samanlagt 217 m2. Áform eru í samræmi við kynnta deiliskipulagslýsingu. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

            Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að til­laga að nýju deili­skipu­lagi verði kynnt og aug­lýst í sam­ræmi við 1. mgr. 43. og 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

            • 7. Um­sókn um lóð til af­nota sunn­an við Fells­hlíð202505698

              Lögð er fram til afgreiðslu ósk Arnar Elíasar Guðmundssonar, eiganda Fellshlíðar, um afnot um 5.250 m2 bæjarlands sunnan Fellshlíðar að íbúðarhúsalóðum Úugötu. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

              Skipu­lags­nefnd synj­ar með fimm at­kvæð­um ósk máls­að­ila um af­not lands sveit­ar­fé­lags­ins sunn­an Fells­hlíð­ar. Nefnd­in tel­ur um­rædda ósk geta haft óljós áhrif á sér­býl­is­húsa­lóð­ir í Úu­götu sem klár­ar eru til upp­bygg­ing­ar. Einn­ig tel­ur nefnd­in mál­ið hugs­an­lega for­dæm­is­gef­andi í ljósi þess að ekki ligg­ur fyr­ir skýr stefna eða verklag sveit­ar­fé­lags­ins um af­not ein­stak­linga af landi með um­rædd­um hætti.

              • 8. Helga­dals­veg­ur 60 - deili­skipu­lags­breyt­ing202306155

                Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu ný tillaga landeigenda að Helgadalsvegi 60, dags. 27.05.2025, að deiliskipulagsbreytingu landbúnaðarlands. Tillagan felur í sér byggingarheimildir fyrir 400 m2 íbúðarhús, nokkur gróðurhús samanlagt 1050 m2, aðstöðuhús gróðurhúsa samanlagt 400 m2, vélageymslu 400 m2 og bændagistingu í nokkrum húsum samanlagt 700 m2. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar. Uppfærð eða breytt gögn bárust frá málsaðila milli funda og hefur inngangur máls og stærðir verið uppfærðar til samræmis.

                Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að heim­ila máls­að­ila að vinna breyt­ingu á deili­skipu­lagi sam­kvæmt 2. mgr. 38. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og í sam­ræmi við 1. mgr. 43. gr. sömu laga, á grund­velli fyr­ir­liggj­andi gagna. Nefnd­in árétt­ar þó mik­il­vægi gæða skipu­lags­gagna þeg­ar um er að ræða jafn fjöl­breytta upp­bygg­ingu og land­eig­andi legg­ur til. Í skipu­lags­reglu­gerð kem­ur fram að deili­skipu­lag skuli vera skýrt og lýs­andi um fram­kvæmd og upp­bygg­ingu. Þann­ig skulu bygg­ing­ar­reit­ir vera vand­lega af­mark­að­ir, skil­mál­ar skor­in­ort­ir og orð­notk­un í sam­ræmi við um­fjöllun mann­virkja í skipu­lags- eða bygg­ing­ar­reglu­gerð. Skil­greina þarf vel þann rekst­ur og gist­ingu sem fara mun fram á land­inu. Þá fel­ur nefnd­in skipu­lags­full­trúa sér­stak­lega að rýna hæð­ir, um­fang og fram­setn­ingu mann­virkja sem til­greind­ar eru í gögn­um. Vegna um­fangs minn­ir nefnd­in á ákvæði að­al­skipu­lags um að upp­bygg­ing á svæð­inu megi ekki vera íþyngj­andi fyr­ir bæj­ar­sjóð vegna hugs­an­legra inn­viða og vís­ar mál­inu jafn­framt til rýni á um­hverf­is­sviði sam­hliða skipu­lags­gerð ráð­gjafa.

                • 9. Hjóla­braut­ir í Æv­in­týragarði202403716

                  Borist hefur erindi sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs Mosfellsbæjar, dags. 16.06.2025, með ósk um framkvæmdaleyfi fyrir stækkun hjólabrautar í Ævintýragarðinum, í samræmi við tillögu.

                  Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með þrem­ur at­kvæð­um að fela skipu­lags­full­trúa að gefa út fram­kvæmda­leyfi í sam­ræmi við 13. og 15. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og skv. reglu­gerð um fram­kvæmda­leyfi nr. 772/2012.
                  Full­trú­ar D-lista í skipu­lags­nefnd fagna áfram­hald­andi upp­bygg­ingu í æv­in­týragarði en sitja hjá við af­greiðslu máls­ins þar sem ekki ligg­ur fyr­ir leyfi fyr­ir nú­ver­andi hjóla­braut í skipu­lagi svæð­is­ins.

                  • 10. Óskots­veg­ur 20-22 - Fyr­ir­spurn um deili­skipu­lag202501626

                    Borist hefur erindi frá Auðni Daníelssyni, dags. 08.10.2024, f.h. beggja landeigenda að Óskotsvegi 20 L125519 og 22 L125524, með ósk um heimild fyrir deiliskipulagsgerð tveggja frístundahúsalóða. Einnig er meðfylgjandi ósk til Mosfellsbæjar um frávik frá ákvæðum skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 um fjarlægðir húsa frá lóðamörkum.

                    Með vís­an í for­dæmi synj­ar skipu­lags­nefnd með fimm at­kvæð­um deili­skipu­lags­gerð og upp­bygg­ingu nýrra frí­stunda­húsa við norð­an­vert Hafra­vatn þar sem að slíkt er ekki í sam­ræmi við gild­andi að­al­skipu­lag Mos­fells­bæj­ar 2011-2030 (bls. 45-46 í grein­ar­gerð). Skipu­lags­nefnd vís­ar þó til þess að í kynnt­um frumdrög­um nýs að­al­skipu­lags er stefna að heim­ila upp­bygg­ingu óbyggðra skráðra lóða upp­fylli þær önn­ur skil­yrði reglu­gerð­ar. Þá bend­ir nefnd­in á að sveit­ar­fé­lag­ið hef­ur ekki heim­ild­ir til þess að veita frá­vik á gild­andi reglu­gerð­um.

                    • 11. Sölkugata 13 - ósk um deili­skipu­lags­breyt­ingu auka­í­búð­ar202506360

                      Borist hefur erindi frá Sigurði Brynjari Guðmundssyni, dags. 12.06.2025, með ósk um deiliskipulagsbreytingu aukaíbúða í Sölkugötu, 3. áfanga Helgafellshverfis. Tillagan sýnir aukaíbúð á allri kjallarahæð byggingar, heimildir fara úr 80 m2 í rúmlega 170 m2.

                      Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að vísa mál­inu til um­sagn­ar hjá skipu­lags­full­trúa og um­hverf­is­sviði vegna ákvæða um auka­í­búð­ir í gild­andi deili­skipu­lagi, í sam­ræmi við um­ræð­ur.

                      • 12. Borg­ar­lína - for­hönn­un stöðva202407088

                        Lagðar eru fram til kynningar og upplýsinga ný drög og vinnugögn að hönnun landslags- og stöðva Borgarlínu.

                        Lagt fram.

                        • 13. Bjark­ar­holt 26-30 - deili­skipu­lags­breyt­ing202409180

                          Arkitektar Arkís, fulltrúar lóðarhafa að Bjarkarholti 26-30, kynna tillögu á vinnslustigi af deiliskipulagsbreytingu lóðanna í samræmi við afgreiðslu á 619. fundi nefndarinnar.

                          Skipu­lags­nefnd þakk­ar Birni Guð­brands­syni fyr­ir kynn­ingu til­lög­unn­ar. Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir að fela skipu­lags­full­trúa og hönn­uð­um lóð­ar­hafa áfram­hald­andi vinnu við deili­skipu­lags­breyt­ingu í sam­ræmi við kynnt drög og um­ræð­ur. Nefnd­in árétt­ar mik­il­vægi þess að við hönn­un skipu­lags­ins verði ljósvist og skugga­varp skoð­að sér­stak­lega með áhersl­ur á gæði íbúða. Einn­ig vek­ur nefnd­in at­hygli á gerð sneið­inga sem sýna af­stöðu bygg­inga við nær­liggj­andi hús, þar með tal­ið ör­yggis­íbúð­ir að Hlað­hömr­um.

                          Gestir
                          • Björn Guðbrandsson
                          • Erna Þráinsdóttir
                          • Eggert Jónsson
                          • 14. 1. áfangi Blikastaðalands - deili­skipu­lag202304103

                            Arkitektar Nordic arkitekta, fulltrúar úr hönnunarteymi deiliskipulags 1. áfangi Blikastaðalands, kynna uppfærð og endurbætt vinnugögn og drög, þar sem unnið hefur verið að breytingum eftir auglýsingu tillögu á vinnslustigi.

                            Skipu­lags­nefnd þakk­ar Vil­hjálmi Leví Eg­ils­syni fyr­ir kynn­ingu til­lög­unn­ar.

                            Gestir
                            • Jón Ágúst Pétursson
                            • Vilhjálmur Leví Egilsson

                            Fundargerðir til kynningar

                            • 15. Af­greiðslufund­ur bygg­ing­ar­full­trúa - 549202506005F

                              Fundargerð lögð fram til kynningar.

                              Lagt fram.

                              • 15.1. Hrafns­höfði 9 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202505496

                                Rún­ar Krist­ins­son Hrafns­höfða 9 sæk­ir um leyfi til breyt­inga innra skipu­lags ein­býl­is­húss á lóð­inni Hrafns­höfði nr. 9 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Breyt­ing felst í að bíl­geymsla verð­ur íbúð­ar­rými. Stærð­ir breyt­ast ekki.

                              • 15.2. Flugu­mýri 16 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1 202503767

                                Borg in­vest ehf. sæk­ir um leyfi til að byggja úr timbri við­bygg­ingu við at­vinnu­hús­næði á lóð­inni Flugu­mýri nr. 16A í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stækk­un: 38,25 m², 114,0 m³.

                              • 15.3. Úugata 69 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202504290

                                Valdís Vilm­ars­dótt­ir Hnjúka­seli 13 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til að byggja úr stein­steypu tveggja hæða ein­býl­is­hús með inn­byggðri bíl­geymslu á lóð­inni Úugata nr. 69 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
                                Stærð­ir: Íbúð 195,3 m², bíl­geymsla 44,4 m², 587,3 m³.

                              • 15.4. Reykja­hvoll 31 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202503715

                                Agn­ar Sig­ur­jóns­son Kvist­haga 8 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til að byggja úr for­steypt­um ein­ing­um tveggja hæða ein­býl­is­hús með inn­byggðri bíl­geymslu á lóð­inni Reykkja­hvoll nr. 31 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
                                Stærð­ir: Íbúð 231,3 m², bíl­geymsla 37,8 m², 1.265,0 m³.

                              • 16. Af­greiðslufund­ur bygg­ing­ar­full­trúa - 550202506016F

                                Fundargerð lögð fram til kynningar.

                                Lagt fram.

                                • 16.1. Brú­arfljót 2 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202506252

                                  E 18 ehf. Loga­fold 32 Reykja­vík sækja sækja um leyfi til breyt­inga áður sam­þykktra að­al­upp­drátta at­vinnu­hús­næð­is á lóð­inni Brú­arfljót nr. 2 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Breyt­ing innra skipu­lags felst í því að rými 0107, 0110, 0206 og 0209 eru sam­ein­uð. Stærð­ir breyt­ast ekki

                                • 16.2. Hlað­gerð­ar­kot - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi 202212015

                                  Sam­hjálp,fé­laga­sam­tök Skútu­vogi 1g Reykja­vík sækja um leyfi til að koma fyr­ir eldri að­fluttri kap­ellu úr timbri á lóð­inni Hlað­gerð­ar­kot í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir: 49,8 m², 134,0 m³.

                                • 16.3. Kol­brún­argata 3 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202502605

                                  Bygg­inga­fé­lag­ið Bakki ehf. Þver­holti 2 sæk­ir um leyfi til að byggja úr stein­steypu 5 íbúða fjöl­býl­is­hús á tveim­ur hæð­um á lóð­inni Kol­brún­argata nr. 3 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir: 562,2 m², 1730,2 m³.

                                • 16.4. Korputún 8A - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1 202505870

                                  Veit­ur ohf. Bæj­ar­hálsi 1 Reykja­vík sækja um leyfi til að byggja úr for­steypt­um ein­ing­um dreif­istöð á lóð­inni Korputún nr. 8A í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir: 17,3 m², 65,8 m³.

                                • 16.5. Langi­tangi 27 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202504366

                                  Luxor ehf. Ak­ur­holti 11 sæk­ir um leyfi til að byggja úr stein­steypu tveggja hæða 4 íbúða rað­hús á lóð­inni Langi­tangi nr. 27 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                                  Stærð­ir:
                                  Langi­tangi 27a: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 27b: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 27c: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 27d: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.

                                • 16.6. Langi­tangi 29 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202504367

                                  Luxor ehf. Ak­ur­holti 11 sæk­ir um leyfi til að byggja úr stein­steypu tveggja hæða 4 íbúða rað­hús á lóð­inni Langi­tangi nr. 29 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                                  Stærð­ir:
                                  Langi­tangi 29a: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 29b: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 29c: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 29d: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.

                                • 16.7. Langi­tangi 31 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202504374

                                  Luxor ehf. Ak­ur­holti 11 sæk­ir um leyfi til að byggja úr stein­steypu tveggja hæða 4 íbúða rað­hús á lóð­inni Langi­tangi nr. 31 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                                  Stærð­ir:
                                  Langi­tangi 31a: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 31b: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 31c: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.
                                  Langi­tangi 31d: Íbúð 179,5 m², 465,6 m³.

                                • 16.8. Langi­tangi 33 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202504440

                                  Luxor ehf. Ak­ur­holti 11 sækja um leyfi til að byggja úr stein­steypu tveggja hæða 3 íbúða rað­hús með bíl­geymsl­um á lóð­inni Langi­tangi nr. 33 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                                  Langi­tangi 33a: Íbúð 175,6 m², bíl­geymsla 28,1m², 699,0 m³.
                                  Langi­tangi 33b: Íbúð 175,6 m², bíl­geymsla 26,3m², 692,9 m³.
                                  Langi­tangi 33c: Íbúð 175,2m², bíl­geymsla 28,1m², 697,7 m³.

                                • 16.9. Langi­tangi 35 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202505541

                                  EJH ehf. Hnoðra­völl­um 5 Hafnar­firði sækja um leyfi til að byggja úr stein­steypu tveggja hæða 3 íbúða rað­hús með stak­stæð­um bíl­geymsl­um á lóð­inni Langi­tangi nr. 35 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                                  Stærð­ir:
                                  Íbúð A: 225,3 m², bíl­geymsla 24,4 m², 601,74 m³.
                                  Íbúð B: 221,9 m², bíl­geymsla 22,6 m², 508,49 m³.
                                  Íbúð C: 221,8 m², bíl­geymsla 24,4 m², 635,1 m³.

                                • 16.10. Lyng­hóls­veg­ur 24B - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202505527

                                  Ólaf­ur Guð­munds­son sæk­ir um leyfi til að byggja úr timbri einn­ar hæð­ar frí­stunda­hús með á lóð­inni Lyng­hóls­veg­ur nr. 24b í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
                                  Stærð­ir: 95,0 m², 242,1 m³.

                                • 16.11. Reykjalund­ur 125400 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1 202504525

                                  Reykjalund­ur end­ur­hæf­ing ehf. sækja um leyfi til að byggja úr úr stáli og sam­loku­ein­ing­um tveggja hæða skrif­stof­ur og starfs­manna­búð­ir á lóð­inni Reykjalund­ur nr. L125400 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                                  Stærð­ir:
                                  1. hæð: 281,8 m², 777,3 m³.
                                  2. hæð: 195,8 m², 548,3 m³.

                                • 16.12. Úugata 3-9- Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1 202412267

                                  Gerð ehf. Kinn­ar­götu 24 Garða­bæ sæk­ir um leyfi til að byggja úr stein­steypu tveggja hæða 4 íbúða rað­hús með inn­byggð­um bíl­geymsl­um á lóð­inni Úugata nr. 3-9 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                                  Stærð­ir:
                                  Úugata 3: Íbúð 145,4 m², bíl­geymsla 24,5 m², 456,6 m³.
                                  Úugata 5: Íbúð 145,4 m², bíl­geymsla 24,5 m², 466,7 m³.
                                  Úugata 7: Íbúð 145,4 m², bíl­geymsla 24,5 m², 466,7 m³.
                                  Úugata 9: Íbúð 145,4 m², bíl­geymsla 24,5 m², 456,6 m³.

                                • 17. Af­greiðslufund­ur skipu­lags­full­trúa - 96202506015F

                                  Fundargerð lögð fram til kynningar.

                                  Lagt fram.

                                  • 17.1. Reiðstíg­ur norð­an Hafra­vatns - fram­kvæmda­leyfi 202506238

                                    Borist hef­ur er­indi frá Maríu Dís Ás­ger­is­dótt­ur, f.h. Vega­gerð­ar­inn­ar, með ósk um fram­kvæmda­leyfi fyr­ir lagn­ingu reiðstígs með­fram Hafra­vatni á 500 m kafla. Áætl­að­ur fram­kvæmda­tími er fyrri hluti júlí. Áætlan­ir eru í sam­ræmi við sam­þykkt deili­skipu­lag reið­leið­ar­inn­ar, sam­þykkt í bæajr­stjórn Mos­fells­bæj­ar þann 01.11.2006.

                                  • 17.2. Sel­merk­ur­veg­ur 17 - deili­skipu­lags­breyt­ing 202504091

                                    Skipu­lags­nefnd sam­þykkti á 629. fundi sín­um að kynna og aug­lýsa deili­skipu­lags­breyt­ingu fyr­ir Sel­merk­ur­veg 17 í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Til­lag­an og gögn voru kynnt á vef Mos­fells­bæj­ar www.mos.is, í Skipu­lags­gátt­inni og með kynn­ing­ar­bréf­um til aðliggj­andi land­eig­enda á Ís­land.is. Um­sagna­frest­ur var frá 13.05.2025 til og með 10.06.2025. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust.

                                  Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00