jumpToMain
mos.is - home

Mál númer 202504091

  • 11 month-5 2025

    Af­greiðslufund­ur skipu­lags­full­trúa #96

    Skipu­lags­nefnd sam­þykkti á 629. fundi sín­um að kynna og aug­lýsa deili­skipu­lags­breyt­ingu fyr­ir Sel­merk­ur­veg 17 í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Til­lag­an og gögn voru kynnt á vef Mos­fells­bæj­ar www.mos.is, í Skipu­lags­gátt­inni og með kynn­ing­ar­bréf­um til aðliggj­andi land­eig­enda á Ís­land.is. Um­sagna­frest­ur var frá 13.05.2025 til og með 10.06.2025. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við til­lög­una, með vís­an í 3. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, skoð­ast til­lag­an sam­þykkt og mun skipu­lags­full­trúi ann­ast gildistöku deiliskipulagsins skv. 2. mgr. 43.gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúi áréttar að aðkoma um einkalönd eru einkaréttarlegir samningar.

    • 30 month-3 2025

      Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #871

      Borist hef­ur er­indi frá KOA arki­tekt­um ehf., f.h. lóð­ar­eig­enda að Sel­merk­ur­vegi 17, dags. 04.04.2025, með ósk um deili­skipu­lags­breyt­ingu lóð­ar. Til­lag­an fel­ur í sér breytta að­komu lóð­ar­inn­ar sem áður var sam­eig­in­leg með lóð­um 11, 13 og 15 en fer nú um lóð­ir 19 og 21, í sam­ræmi við gögn.

      Af­greiðsla 629. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar stað­fest á 871. fundi bæj­ar­stjórn­ar með 10 at­kvæð­um.

      • 11 month-3 2025

        Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #629

        Borist hef­ur er­indi frá KOA arki­tekt­um ehf., f.h. lóð­ar­eig­enda að Sel­merk­ur­vegi 17, dags. 04.04.2025, með ósk um deili­skipu­lags­breyt­ingu lóð­ar. Til­lag­an fel­ur í sér breytta að­komu lóð­ar­inn­ar sem áður var sam­eig­in­leg með lóð­um 11, 13 og 15 en fer nú um lóð­ir 19 og 21, í sam­ræmi við gögn.

        Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fjór­um at­kvæð­um að deili­skipu­lags­breyt­ing­in skuli aug­lýst og kynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og gennd­arkynnt aðliggj­andi lóð­um vegna að­komu.