jumpToMain
mos.is - home

Mál númer 202501626

  • 25 month-5 2025

    Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #875

    Borist hef­ur er­indi frá Auðni Daní­els­syni, dags. 08.10.2024, f.h. beggja land­eig­enda að Óskots­vegi 20 L125519 og 22 L125524, með ósk um heim­ild fyr­ir deili­skipu­lags­gerð tveggja frí­stunda­húsa­lóða. Einn­ig er með­fylgj­andi ósk til Mos­fells­bæj­ar um frá­vik frá ákvæð­um skipu­lags­reglu­gerð­ar nr. 90/2013 um fjar­lægð­ir húsa frá lóða­mörk­um.

    Af­greiðsla 633. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar stað­fest á 875. fundi bæj­ar­stjórn­ar með 11 at­kvæð­um.

    • 20 month-5 2025

      Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #633

      Borist hef­ur er­indi frá Auðni Daní­els­syni, dags. 08.10.2024, f.h. beggja land­eig­enda að Óskots­vegi 20 L125519 og 22 L125524, með ósk um heim­ild fyr­ir deili­skipu­lags­gerð tveggja frí­stunda­húsa­lóða. Einn­ig er með­fylgj­andi ósk til Mos­fells­bæj­ar um frá­vik frá ákvæð­um skipu­lags­reglu­gerð­ar nr. 90/2013 um fjar­lægð­ir húsa frá lóða­mörk­um.

      Með vís­an í for­dæmi synj­ar skipu­lags­nefnd með fimm at­kvæð­um deili­skipu­lags­gerð og upp­bygg­ingu nýrra frí­stunda­húsa við norð­an­vert Hafra­vatn þar sem að slíkt er ekki í sam­ræmi við gild­andi að­al­skipu­lag Mos­fells­bæj­ar 2011-2030 (bls. 45-46 í grein­ar­gerð). Skipu­lags­nefnd vís­ar þó til þess að í kynnt­um frumdrög­um nýs að­al­skipu­lags er stefna að heim­ila upp­bygg­ingu óbyggðra skráðra lóða upp­fylli þær önn­ur skil­yrði reglu­gerð­ar. Þá bend­ir nefnd­in á að sveit­ar­fé­lag­ið hef­ur ekki heim­ild­ir til þess að veita frá­vik á gild­andi reglu­gerð­um.