Mál númer 202506380
- 20. júní 2025
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #633
Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu deiliskipulagsbreyting fyrir íþróttasvæðið að Varmá. Breytingin felur í sér tilfærslu og hönnun nýs gervigrasvallar auk girðinga, lýsingar og markatöflu. Samhliða hliðrun vallar eru gerðar breytingar á byggingarreit stúku sem færist samsíða til suðausturs. Innfærðar eru áætlanir um nýtt tartan frjálsíþróttasvæði og hlaupabraut. Byggingarheimildir þjónustubyggingar eru einnig hækkaðar upp í 1.800 m2, í samræmi við gögn.
Skipulagsnefnd samþykkir með fimm atkvæðum að tillaga að nýju deiliskipulagi verði kynnt og auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.