Mál númer 202506360
- 20. júní 2025
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #633
Borist hefur erindi frá Sigurði Brynjari Guðmundssyni, dags. 12.06.2025, með ósk um deiliskipulagsbreytingu aukaíbúða í Sölkugötu, 3. áfanga Helgafellshverfis. Tillagan sýnir aukaíbúð á allri kjallarahæð byggingar, heimildir fara úr 80 m2 í rúmlega 170 m2.
Skipulagsnefnd samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar hjá skipulagsfulltrúa og umhverfissviði vegna ákvæða um aukaíbúðir í gildandi deiliskipulagi, í samræmi við umræður.