Mál númer 202504290
- 3. júní 2025
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #549
Valdís Vilmarsdóttir Hnjúkaseli 13 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Úugata nr. 69 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 195,3 m², bílgeymsla 44,4 m², 587,3 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.