Mál númer 202501626
- 20. júní 2025
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #633
Borist hefur erindi frá Auðni Daníelssyni, dags. 08.10.2024, f.h. beggja landeigenda að Óskotsvegi 20 L125519 og 22 L125524, með ósk um heimild fyrir deiliskipulagsgerð tveggja frístundahúsalóða. Einnig er meðfylgjandi ósk til Mosfellsbæjar um frávik frá ákvæðum skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 um fjarlægðir húsa frá lóðamörkum.
Með vísan í fordæmi synjar skipulagsnefnd með fimm atkvæðum deiliskipulagsgerð og uppbyggingu nýrra frístundahúsa við norðanvert Hafravatn þar sem að slíkt er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Mosfellsbæjar 2011-2030 (bls. 45-46 í greinargerð). Skipulagsnefnd vísar þó til þess að í kynntum frumdrögum nýs aðalskipulags er stefna að heimila uppbyggingu óbyggðra skráðra lóða uppfylli þær önnur skilyrði reglugerðar. Þá bendir nefndin á að sveitarfélagið hefur ekki heimildir til þess að veita frávik á gildandi reglugerðum.