15. apríl 2024 kl. 13:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Bugðufljót 17 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,202404047
Bátur ehf. sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Bugðufljót nr. 17c, mhl. 02 - rými 02 0210, í samræmi við framlögð gögn. Bætt er við millilofti. Stærðir: Milliloft 46,5 m².
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
2. Laxatunga 41 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,202402017
Herdís Kristín Sigurðardóttir Laxatungu 41 sækirum leyfi til breytinga innra skipulags og útlits einbýlishúss á lóðinni Laxatunga nr. 41 í samræmi við framlögð gögn.