27. september 2024 kl. 09:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Hraðastaðir Bókfell 123661 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1202409482
Sigrún Hjartardóttir Bókfelli sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu, málmi og plastklæðningu gróðurhús á lóðinni Bókfell í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 142,2 m², 474,2 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
2. Reykjahvoll 4 (áður Ásar 6) - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2202405405
Stephen Patrick Lockhart Urðarholti 7 sækir um leyfi til að byggja úr timbri einbýlishús á einni hæð á lóðinni Reykjahvoll nr. 4 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 52,0 m², 156,0 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
3. Úugata 20 -24 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2,202311174
Pálsson Apartments ehf. Suðurlandsbraut 6 sækja um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta 4 raðhúsa á lóðinni Úugata nr. 20-24 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt