16. desember 2020 kl. 16:30,
í fjarfundi
Fundinn sátu
- Sigurður G. Tómasson aðalmaður
- Regína Hansen Guðbjörnsdóttir aðalmaður
- Karl Alex Árnason aðalmaður
- Sigurþór Ingi Sigurðsson aðalmaður
- Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir formaður
- Sveinbjörn Benedikt Eggertsson aðalmaður
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
- Elva Hjálmarsdóttir fjölskyldusvið
Fundargerð ritaði
Elva Hjálmarsdóttir ráðgjafi á fjölskyldusviði
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Umsókn um starfsleyfi202001080
Staðfesting á starfsleyfi Ásgarðs lögð fyrir til kynningar.
Staðfesting á starfsleyfi Ásgarðs lögð fram til kynningar.
2. Umsókn um starfsleyfi202011207
Beiðni frá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar um umsögn notendaráðs vegna starfsleyfisumsóknar Skálatúns.
Beiðni frá Gæða- og eftirlitsstofnun lögð fram.
3. Félagsstarf fyrir fullorðið fatlað fólk sumarið 2020 vegna COVID-19202006457
Skýrsla framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs vegna aukins félagsstarfs fatlaðs fólks sumarið 2020 lögð fram til kynningar.
Skýrsla vegna aukins félagsstarfs fatlaðs fólks kynnt.
4. Reglur um beingreiðslusamninga202011042
Drög að reglum Mosfellsbæjar um beingreiðslusamninga lagðar fyrir til umræðu og kynningar.
Drög að reglum um beingreiðslusamninga kynntar.
5. Reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra202006527
Drög að reglum Mosfellsbæjar um stuðnings- og stoðþjónustu við börn og barnafjölskyldur lagðar fyrir til kynningar og umræðu.
Máli frestað til næsta fundar