12. febrúar 2021 kl. 09:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Bergrúnargata 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202101145
Uppreist ehf. Lynghálsi 4 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta parhúss á lóðinni Bergrúnargata nr. 3 og 3A í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
2. Bjarkarholt 7-9 (17-19) /Umsókn um byggingarleyfi.201801132
ÞAM ehf. Katrínartúni 2 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fjölbýlishúss á lóðinni Bjarkarholt nr. 7-9, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt
3. Reykjahvoll 31, Umsókn um byggingarleyfi201911399
Arnar Skjaldarson Brekkuási 11 Hafnarfirði sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðluppdrátta einbýlishúss á lóðinni Reykjahvoll nr. 31 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
4. Súluhöfði 45 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202101192
Hákon Hákonarson Ólafsgeisla 1 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Súluhöfði nr. 45, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 200,8 m², bílgeymsla 50,2 m², 796,26 m³.
Samþykkt