10. ágúst 2021 kl. 16:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Björk Ingadóttir varaformaður
- Sólveig Franklínsdóttir (SFr) formaður
- Guðrún Þórarinsdóttir (GÞ) aðalmaður
- Olga Jóhanna Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Arna Björk Hagalínsdóttir (ABH) varamaður
- Sólborg Alda Pétursdóttir varamaður
- Auður Halldórsdóttir ritari
Fundargerð ritaði
Auður Halldórsdóttir Forstöðumaður menningarmála
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Listasalur Mosfellsbæjar - sýningar 2022202108152
Tillaga að sýningarhaldi í Listasal Mosfellsbæjar fyrir árið 2022 lagðar fram. Steinunn Lilja Emilsdóttir umsjónarmaður Listasalar kemur á fundinn undir þessum lið.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir tillögu að umsjónarmanns Listasalar Mosfellsbæjar og forstöðumanns bókasafns og menningarmála að sýningarhaldi i Listasal Mosfellsbæjar 2022.
Gestir
- Steinunn Lilja Emilsdóttir
2. Í túninu heima 2021202108153
Farið yfir stöðu mála varðandi bæjarhátíðina Í túninu heima 2021.
Hilmar Gunnarsson verkefnisstjóri bæjarhátíðarinnar Í túninu heima tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Fram fara umræður um stöðu mála.
Gestir
- Hilmar Gunnarsson
3. Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 20212021041689
Tilnefning bæjarlistamanns Mosfellsbæjar 2021 Fyrir fundinum liggur að velja bæjarlistamann 2021. Tillögur sem borist hafa frá íbúum lagðar fram.
Fyrri umferð á kjöri bæjarlistamanns Mosfellsbæjar 2021 fer fram.