19. nóvember 2021 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Álafossvegur 27 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202108666
Álafossbrekkan ehf. Álafossvegi 31 sækir um leyfi til breytinga á innra skipulagi og skráningu íbúðarhúsnæðis á lóðinni Álafossvegur nr. 27 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
Samþykkt
2. Liljugata 8-12- Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202111007
Byggingafélagið Bakki ehf. Þverholti 2 sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu þriggja íbúða raðhús á einni hæð á lóðinni Liljugata nr. 8-12, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir hús nr. 8: Íbúð 190,5 m², 666,8 m³. Stærðir hús nr. 10: Íbúð 189,9 m², 664,7 m³. Stærðir hús nr. 12: Íbúð 189,8 m², 664,3 m³. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
Samþykkt
3. Úr Miðdalslandi 125202 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202105253
Kristján Vídalín Óskarsson Akurholti 3 sækir um leyfi til að byggja úr timbri frístundahús á lóðinni Lynghólsvegur nr. 15, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 200,2 m², 905,24 m³. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
Samþykkt