25. janúar 2022 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Kvíslartunga 28 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202111334
Fanndalur ehf. Kleppsvegi 24 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Kvíslartunga nr. 28, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 336,5 m², bílgeymsla 46,0 m², 935,56 m³.
Samþykkt
2. Brattahlíð 24-30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Trébúkki ehf.202106095
Tré-Búkki ehf. Suðurhúsum 2 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fjögura raðhúsa á lóðinni Brattahlíð nr. 24-30 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt