8. apríl 2020 kl. 14:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson umhverfissvið
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Bjarkarholt 8-20, Umsókn um byggingarleyfi.201806016
Klapparholt ehf. Turnahvarfi 4 Kópavogi sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fjölbýlishúss á lóðinni Bjarkarholt nr. 8-20, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt
2. Bugðufljót 7, Umsókn um byggingarleyfi.201702113
AB Verk ehf., Víkurhvarfi 6 203 Kópavogi, sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Bugðufljót nr. 7, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt.
3. Gerplustræti 14, Umsókn um byggingarleyfi Helgafellsskóli.201702127
Mosfellsbær Þverholti 2 sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta 1. og 4. áfanga skólahúsnæðis á lóðinni nr. 14 við Gerplustræti í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt.
4. Leirutangi 2 / Umsókn um byggingarleyfi /breytingar202004048
Kristín Einarsdóttir Leirutanga 2 sækir um leyfi til breytinga innra skipulags einbýlishúss á lóðinni Leirutangi nr. 2 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt
5. Skák, sumarhús í landi Hraðastaða, Umsókn um byggingarleyfi202003061
Guðmundur Þór Gunnarsson Reiðvaði 7 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri viðbyggingu við eldra frístundahúsá lóðinni Skák í landi Hraðastaða, landnr. 123664, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Stækkun 126,6 m², 425,9 m³
Vísað til umsagnar skipulagsnenfndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag af svæðinu.
6. Uglugata 32-38, Umsókn um byggingarleyfi.201710068
Seres byggingafélag Bæjarlind 2 Kópavogi sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fjölbýlishúss á lóðinni Uglugata nr. 32-38, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
7. Uglugata 62, Umsókn um byggingarleyfi202002065
Óttar Karlsson Furuási 17 Hafnarfirði sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu lóðinni Uglugata nr. 62 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 231,5 m², bílgeymsla 59,2 m², 1070,0 m³.
Samþykkt