2. júlí 2021 kl. 09:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Efstaland 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202107015
Ingibjörg Kristín Valsdóttir Efstalandi 12 sækir um leyfi til að byggja úr málmi og gleri sólskála á þakverönd raðhúss á lóðinni Efstaland nr. 12, í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 16,7 m², 38,4 m³.
Samþykkt
2. Umsókn um byggingarleyfi202105336
Sölvi Sveinsson Kambsvegi 2 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja við frístundahús á lóð B í Miðdalslandi, Skinþúfa L219986, í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 32,8 m²,99,6 m³.
Samþykkt
3. Laxatunga 121 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202008551
Sergey Kuznetsov Njarðargrund 3 Garðabæ sækir um leyfi til að byggja úr timbri einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Laxatunga nr. 121, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 188,6 m², bílgeymsla 45,2 m², 1.025,67 m³.
Samþykkt