22. október 2019 kl. 11:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Laxatunga 197 / Umsókn um byggingarleyfi.201807172
Idé Fasteignir ehf., kt. 700418-0140, Ármúli 15 Reykjavík sækir um breytingu áður samþykktra aðaluppdrátta, fyrir einbýlishús á lóðinni Laxatunga nr. 197, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Vísað til umsagnar skipulagsnenfdar þar sem erindið samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.
2. Skálahlíð 30, Umsókn um byggingarleyfi201702194
Litlikriki ehf. Traðarholti 276 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 30 við Skálahlíð í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Íbúð 191,2 m2, bílgeymsla 42,7 m2, 828,2 m3.
Samþykkt