13. apríl 2021 kl. 14:45,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Grundartangi 32-36 - hækkun á þaki202004168
Skipulagsnefnd samþykkti á 535. fundi sínum að grenndarkynna byggingaráform í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fyrirliggjandi gögn. Áformin voru kynnt með dreifibréfi sem send voru út í öll hús við Grundartanga. Athugasemdafrestur var frá 10.03.2021 til og með 09.04.2021. Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugasemdir bárust við kynnt áform, með vísan í 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa, er byggingarfulltrúa heimilt að gefa út byggingarleyfi þegar að umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og þegar kynntum gögnum.