4. desember 2020 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Bjarkarholt 11-29, Umsókn um byggingarleyfi.201710129
NMM Garðastræti 37 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fjölbýlishúss á lóðinni Bjarkarholt nr. 21 og 23, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt
2. Laxatunga 99 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202010345
Tæki og eignir ehf. Skeiðakri 5 Garðabæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Laxatunga nr.99, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 146,3 m², bílgeymsla 30,9 m², 576,8 m³.
Samþykkt