9. nóvember 2021 kl. 16:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Sólveig Franklínsdóttir (SFr) formaður
- Björk Ingadóttir varaformaður
- Rafn Hafberg Guðlaugsson aðalmaður
- Ingibjörg B Jóhannesdóttir aðalmaður
- Samsidanith Chan áheyrnarfulltrúi
- Olga Jóhanna Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Auður Halldórsdóttir ritari
Fundargerð ritaði
Auður Halldórsdóttir Forstöðumaður menningarmála
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Menningarviðburðir á aðventu 2021 og þrettándinn 2022202110126
Rætt um dagsetningu Þrettándahátíðarhalda í Mosfellsbæ 2022.
Menningar- og nýsköpunarnefnd leggur til við bæjarstjórn að þrettándahátíðarhöldin fari að þessu sinni fram fimmtudaginn 6. janúar kl. 18:00, þó með fyrirvara um fjöldatakmarkanir eða aðrar ráðstafanir Almannavarna vegna Covid 19.
2. Þróunar- og nýsköpunarviðurkenning Mosfellsbæjar 2021202109321
Úrvinnsla umsókna um þróunar- og nýsköpunarviðurkenningu Mosfellsbæjar 2021.
Lagðar fram og ræddar umsóknir um Þróunar- og nýsköpunarviðurkenningu Mosfellsbæjar 2021.