Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

21. janúar 2021 kl. 11:00,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Brú yfir Varmá við Stekkj­ar­flöt - deili­skipu­lags­breyt­ing Ála­fosskvos202011323

    Skipulagsnefnd samþykkti á 529. fundi sínum að auglýsa deiliskipulagsbreytingu fyrir nýja göngubrú yfir Varmá við Stekkjarflöt, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst á vef sveitarfélagsins auk þess að vera aðgengileg á upplýsingatorgi Þverholti 2. Kynningarbréf og gögn voru send í Brekkuland 1 og 3, Hagaland 1 og Helgafellsveg 10. Athugasemdafrestur var frá 10.12.2020 til 14.01.2021. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við til­lög­una, með vís­an í 3. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, skoð­ast til­lag­an sam­þykkt og mun skipu­lags­full­trúi ann­ast gildis­töku henn­ar skv. 42. gr. skipu­lagslaga.

    Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15