18. júní 2025 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) formaður
- Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir varaformaður
- Jana Katrín Knútsdóttir (JKK) aðalmaður
- Ölvir Karlsson (ÖK) áheyrnarfulltrúi
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) aðalmaður
- Brynja Hlíf Hjaltadóttir (BHH) aðalmaður
- Dögg Harðardóttir Fossberg áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði
Sigurbjörg Fjölnisdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Beiðni frá velferðarráði Reykjavíkur um sameiginlegan fund velferðarráða202506050
Erindi frá velferðarráði Reykjavíkurborgar um sameiginlegan fund velferðarráða höfuðborgarsvæðisins lagt fyrir til samþykktar.
Velferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu um sameiginlegan fund velferðarnefnda á höfuðborgarsvæðinu.
2. Þjónustukönnun Pant 2025202506314
Þjónustukönnun Pant 2025 lögð fyrir til kynningar.
Kynnt og rætt.
3. Kynningarfundur fyrir eldri borgara í Mosfellsbæ202408194
Fyrirhugaður kynningarfundur fyrir eldri borgara í Mosfellsbæ ræddur.
Áætlað er að halda kynningarfund fyrir eldri borgara miðvikudaginn 27. ágúst eftir hádegi. Velferðarnefnd fagnar því að slíkur fundur sé áætlaður enn eitt árið.
Máli vísað til kynningar og umræðu í öldungaráði.
4. Bráða- og viðbragðsteymi sveitarfélaganna vegna ofbeldismála202506337
Möguleg umsókn til mennta- og barnamálaráðuneytis um styrk til bráða- og viðbragðsteymis vegna ofbeldismála fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu kynnt og rædd.
Velferðarnefnd fagnar fyrirhugaðri umsókn og lýsir yfir fullum stuðningi við verkefnið.
Velferðarnefnd óskar eftir því að málið verði lagt fram til kynningar í fræðslunefnd og ungmennaráði.
Gestir
- Egla Ursúla Stasysdóttir
Fundargerð
5. Trúnaðarmálafundur 2022-2026 - 1777202506010F