15. ágúst 2019 kl. 17:00,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Bjartur Steingrímsson formaður
- Kristín Ýr Pálmarsdóttir (KÝP) varaformaður
- Ölvir Karlsson (ÖK) aðalmaður
- Unnar Karl Jónsson aðalmaður
- Michele Rebora (MR) aðalmaður
- Þorlákur Ásgeir Pétursson áheyrnarfulltrúi
- Tómas Guðberg Gíslason umhverfissvið
- Heiða Ágústsdóttir umhverfissvið
Fundargerð ritaði
Tómas G. Gíslason umhverfisstjóri
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2019201906065
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2019 og farið í vettvangsferð til að skoða fallega garða sem tilnefndir voru til umhverfisviðurkenninga.
Umhverfisnefnd fór í vettvangsferð til að skoða fallega garða sem tilnefndir voru til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar árið 2019.
Umhverfisnefnd hefur ákveðið að veita einum garði og einum einstaklingi umhverfisviðurkenningar ársins 2019 og fylgja upplýsingar um verðlaunahafa með í sérstöku minnisblaði. Viðurkenningarnar verða veittar á bæjarhátíðinni Í túninu heima í lok ágúst, og þá verður upplýst um verðlaunahafa.