5. ágúst 2021 kl. 14:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Brúarfljót 3, Umsókn um byggingarleyfi202103580
Berg Verktakar ehf. Höfðabakka 9 Reykjavík sækja um leyfi til að byggja úr límtré atvinnuhúsnæði í tveimur byggingum með samtals með 31 eignarhluta á lóðinni Brúarfljót nr. 3 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir mhl 01: 1.299,9 m², 6.369,15 m³. Stærðir mhl 02: 1.081,2 m², 5.278,16 m³.
Samþykkt
2. Skálahlíð 13, Umsókn um byggingarleyfi202012186
Skálatúnsheimilið Mosfellsbæ sækir um leyfi til breytinga á innra skipulagi 1. og 2. hæðar íbúðarhúss við Skálatún nr. 13 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt