8. febrúar 2022 kl. 16:31,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Björk Ingadóttir varaformaður
- Sólveig Franklínsdóttir (SFr) formaður
- Rafn Hafberg Guðlaugsson aðalmaður
- Arna Björk Hagalínsdóttir (ABH) varamaður
- Guðrún Þórarinsdóttir (GÞ) aðalmaður
- Samsidanith Chan áheyrnarfulltrúi
- Olga Jóhanna Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Arnar Jónsson forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
Fundargerð ritaði
Arnar Jónsson Forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Samningur um vinabæjarsamstarf 2021202102464
Tillaga að breytingum á samningi um vinabæjasamstarf.
Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar ritara vinabæjasamstarfs Mosfellsbæjar fyrir kynningu á tillögum að breytingum á samningi um vinabæjarsamstarf og samþykkir framkomnar tillögur.
2. Lista- og menningarsjóður - uppgjör 2021.202202080
Uppgjör lista- og menningarsjóðs 2021.
Lagt fram uppgjör Lista- og menningarsjóðs fyrir árið 2021.
Samþykkt að frestur til að sækja um úr Lista- og menningarsjóði sé til 9. mars nk. Starfsáætlun ásamt tillögu nefndarinnar um úthlutun úr sjóði lögð fram á fundi menningar- og nýsköpunarnefndar 15. mars nk.