4. júní 2021 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Ástu-Sólliljugata 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202103265
Jóhann Pétur Sturluson Heiðarvegi 34 Vestmannaeyjum sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta einbýlishúss á lóðinni Ástu-Sólliljugata nr. 9, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
2. Dælustöðvarvegur 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2021041687
Veitur ohf. sækja um leyfi til lítilsháttar útlitsbreytinga utanhússklæðningar ásamt viðhaldi dælustöðvar á lóðinni Dælustöðvarvegur nr. 6, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
3. Engjavegur 11A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202103714
Kristján Þór Jónsson Efstalandi 2 sækir um leyfi til að byggja úr timbri einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Engjavegur nr. 11A, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 162,9m², bílgeymsla 39,9 m², 685,76 m³.
Samþykkt
4. Reykjahvoll 4A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202105029
Kali ehf. Bröttuhlíð 25 sækir um leyfi til að byggja úr timbri einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Reykjahvoll nr. 4A, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 161,0 m², bílgeymsla 58,1 m², 584,5 m³.
Samþykkt
5. Sölkugata 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202104123
Aðalsteinn Jónsson Litlakrika 7 sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Sölkugata nr. 15, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 364,7 m², bílgeymsla 43,6 m², 1.327,1 m³.
Samþykkt