16. nóvember 2023 kl. 14:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Bugðufljót 15 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,202304403
Bugðufljót 15 ehf.sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Bugðufljót nr. 15 í samræmi við framlögð gögn. Sótt er um breytingu á innra skipulagi. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
2. Flugumýri 10-12 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,202309714
Málmaendurvinnslan ehf. sækja um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Flugumýri nr. 10-12 í samræmi við framlögð gögn. Sótt er um breytta útfærslu lóðarfrágangs og fráveitulagna á lóð. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt.
3. Urðarholt 2-4 2R - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202010145
Dýralæknirinn í Mosfellsbæ ehf Urðarholti 2 sækir um leyfi til breytinga innra skipulags eignarhluta 0101 og 0201 atvinnuhúsnæðis á lóðinni Urðarholt nr. 2 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt.