31. ágúst 2023 kl. 15:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Melkot 124512 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,202308159
Halldór Þorgeirsson Melkoti sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta á lóðinni Melkot, L124512, í samræmi við framlögð gögn. Breyting felur í sér að bílgeymslu er breytt í íbúðarrými. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.