30. janúar 2018 kl. 09:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Ásbjörn Þorvarðsson byggingarfulltrúi
- Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Ásbjörn Þorvarðarson byggingafulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Brattahlíð 25 /Fyrirspurn um byggingarleyfi201801169
Guðrún Alda Elísdóttir Arnarhöfða 10 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 25 við Bröttuhlíð í samræmi við framlögð gögn. Stærð íbúðar 197,5 m2, bílgeymsla 38,4 m2, 892,7 m3.
Byggingafylltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um erindið vegna beiðni um leyfi til að breyta staðsetningu á bílastæðum og bílgeymslu.
2. Efstaland 7, Umsókn um byggingarleyfi201801025
Óðinsauga Stórakrika 55 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu og aukaíbúð á lóðinni nr. 7 við Efstaland í samræmi við framlögð gögn. Stærð: 1. hæð 143,5 m2, 2. hæð íbúð 167,8 m2, 1244,5 m3.
Byggingafulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um erindið vegna aukaíbúðar og umfram nýtingarhlutfalls.
3. Lerkibyggð 1-3 /Umsókn um byggingarleyfi201801247
Finnbogi R Jóhannesson Arnarhöfða 8 270 Mosfellsbæ sækir um leyfi vegna fyrirkomulagsbreytinga og fjölgunar bílastæða á lóðinni nr. 1-3 við Lerkibyggð í samræmi við framlögð gögn.
Samþykkt.
4. Skógar Engjavegur , Umsókn um byggingarleyfi201712213
Baldvin Már Frederiksen Njörvasundi 1 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 22 við Engjaveg, Skógar. Stærð. Íbúð 138,4 m2, bílgeymsla 41,6 m2, 680,9 m3.
Byggingafulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um erindið.
5. Stórikriki 37. , Umsókn um byggingarleyfi201801190
Ingi Björn Kárason Litlakrika 39 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að stækka úr steinsteypu kjallararými hússins nr. 37 við Stórakrika í samræmi við framlögð gögn. Stækkun 53,4 m2 190,0 m3.
Samþykkt.
6. Sölkugata 14, Umsókn um byggingarleyfi201801209
Hrund Jónsdóttir Silungakvísl 16 Reykjavík sækir um leyfi vegna glugga og fyrirkomulagsbreytinga á neðri hæð hússins nr. 14 við Sölkugötu í samræmi við framlögð gögn. Stærðir hússins breytast ekki.
Samþykkt.
7. Sölkugata 16-20, Umsókn um byggingarleyfi201801171
Hæ ehf. Völuteigi 6 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að breyta þakfrágangi í viðsnúin þök á húsunum nr. 16,18 og 20 við Sölkugötu í samræmi við framlögð gögn. Stærðir húsanna breytast ekki.
Samþykkt.
8. Uglugata 24-30, Umsókn um byggingarleyfi. Breyting á innra skipulagi201801266
AH. verktakar ehf. sækja um leyfi vegna innri fyrirkomulagsbreytinga á íbúðum nr. 0101, 0201 og 0202 í matshluta 02 að Uglugötu 24-30 í samræmi við framlögð gögn. Heildarstærðir hússins breytast ekki.
Samþykkt.
9. Uglugata 48-50, Umsókn um byggingarleyfi. Breyting inni201801267
Guðmundur Skúlason Uglugötu 48 Mosfellsbæ sækir um leyfi vegna fyrirkomulagsbreytinga á bílgeymslum hússins að Uglugötu 48 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir bílgeymslna breytast ekki.
Samþykkt.