20. desember 2019 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Laxatunga106, Umsókn um byggingarleyfi201910337
Andrei Lazaren, Laxatungu 106, sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta raðhúsa á lóðunum Laxatunga nr. 102 - 106, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt.
2. Lækjarhlíð 1A, Umsókn um byggingarleyfi.201805260
Laugar ehf., Sundlaugavegi 30A Reykjavík, sækja um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta íþróttahúss á lóðinni Lækjarhlíð nr. 1A, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt.
3. Völuteigur 21 - Umsókn um byggingarleyfi201912059
Glertækni ehf. Völuteig 21, heimili sækir um leyfi til breytinga innra skipulags ásamt breyttri skráningu atvinnuhúsnæðis á lóðinni Völuteigur nr. 21, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt.