23. nóvember 2018 kl. 13:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Lækjarhlíð 1A, Umsókn um byggingarleyfi201805260
Laugar ehf. Sundlaugavegur 30a 105 Reykjavík, sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu íþróttahús sem viðbyggingu við núverandi íþróttamannvirki á lóðinni Lækjarhlíð nr.1A, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 924,1 m², 2.881,659 m³.
Samþykkt.