21. október 2010 kl. 09:00,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Bryndís Haraldsdóttir (BH) varaformaður
- Jón Jósef Bjarnason (JJB) áheyrnarfulltrúi
- Hafsteinn Pálsson (HP) 1. varamaður
- Haraldur Sverrisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
Stefán Ómar Jónsson bæjarritari
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Starfsáætlanir Mosfellsbæjar 2009-2011200809341
Á þessum fundi sínum heimsótti bæjarráð Mosfellsbæjar sex stofnanir Mosfellsbæjar og hófst heimsóknin á stjórnsýslusviði kl. 09:00 og endaði á fjölskyldusviði kl. 12:00.
Á hverjum heimstóknarstað fóru forstöðumenn og starfsfólk yfir starfsáætlanir stofnananna fyrir árið 2011, auk þess sem bæjarráðsmenn spurðu spurninga um og fengu svör er vörðuðu starfssemi stofnananna.