14. ágúst 2015 kl. 08:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Ásbjörn Þorvarðsson byggingarfulltrúi
- Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Ásbjörn Þorvarðarson byggingafulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Laxatunga 62-68 /umsókn um byggingarleyfi201507259
Húsbyggingar ehf. Háholti 14 Mosfellsbæ sækja um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum einar hæðar raðhús með innbyggðum bílgeymslum á lóðunum nr. 62, 64, 66 og 68 við Laxatungu í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Hús nr.62, íbúð 110,1 m2, bílgeymsla 25,0 m2, 581,9 m3. Hús nr.64, íbúð 110,1 m2, bílgeymsla 25,0 m2, 581,9 m3. Hús nr.66, íbúð 110,1 m2, bílgeymsla 25,0 m2, 581,9 m3. Hús nr.68, íbúð 110,1 m2, bílgeymsla 25,0 m2, 581,9 m3.
Samþykkt.
2. Laxatunga 87 /umsókn um byggingarleyfi201507237
Selá ehf.Þrastarhöfða 57 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr timbri einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 87 við Laxatungu í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Íbúðarrými 170,0 m2, bílgeymsla 34,2 m2, 672,9 m3.
Samþykkt.
3. Laxatunga 89 /umsókn um byggingarleyfi201507238
Selá ehf.Þrastarhöfða 57 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr timbri einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 89 við Laxatungu í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Íbúðarrými 170,0 m2, bílgeymsla 34,2 m2, 672,9 m3.
Samþykkt.
4. Lundur 1 /umsókn um byggingarleyfi201507239
Hafberg Þórisson Lambhagavegi 23 Reykjavík sækir um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi núverandi bílageymslu / starfsmannaaðstöðu að Lundi í samræmi við framlögð gögn. Stærðir hússins breytast ekki.
Samþykkt.
5. Skálahlíð 31 / umsókn um byggingarleyfi201508106
Daníel V. Antonsson Þrastarhöfða 1 Mosfellsbæ sækir um takmarkað byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi og bílgeymslu úr forsteyptum einingum á lóðinni nr. 31 við Skálahlíð í samræmi við framlögð gögn. Heildarstærð húss er 180,3 m2 og 702,0 m3 en á uppdráttum kemur fram að tvö horn þess ná talsvert út fyrir byggingarreit.
Byggingafulltrúi óskar eftir umfjöllun skipulagsnefndar um erindið.
6. Skálahlíð 36 - umsókn um byggingarleyfi201508967
Björgvin Guðjónsson Helgalandi 11 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 36 við Skálahlíð í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Íbúð 162,6 m2, bílgeymsla 64,6 m2, 855,4 m3. Fyrir liggur skriflegt samþykki eiganda hússins nr. 38 við Skálahlíð vegna breyttrar staðsetningar bílastæða á lóðinni sem umsækjandi ber allan kostnað af.
Samþykkt.
7. Vefarastræti 7-11, umsókn um byggingarleyfi201505045
Varmárbyggð Stórhöfða 34-40 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu 34 íbúða fjöleignahús, bílakjallara ásamt hjóla- og vagnageymslum á lóðinni nr. 7-11 við Vefarastræti. Stærð húss: Bílakjallari ofl. 1074,0 m2, íbúðarhúsnæði 1. hæð 1155,2 m2, 2. hæð 1133,3 m2, 3. hæð 113,3 m2, 13514,2 m3.
Samþykkt.