12. mars 2019 kl. 13:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Flugumýri 2, Umsókn um byggingarleyfi201902114
Bifreiðaverkstæði Mosfellsbæjar ehf, Flugumýri 2, sækir um leyfi til að bæta við neyðarútgangi á norðuhlið mhl. nr. 0101 atvinnuhúsnæðis á lóðinni Flugumýri nr. 2, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt.
2. Flugumýri 10, Umsókn um byggingarleyfi201902228
Reynir Hjálmtýsson, Dvergholt 3, sækir um leyfi til að breyta innra skipulagi atvinnuhúsnæðiss á lóðinni Flugumýri nr. 10, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 1.418,8 m², 10.660,9 m³.
Samþykkt.
3. Skólabraut 2-4, Umsókn um byggingarleyfi201902106
Mosfellsbær, Þverholt 2, sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu, stáli og tvöföldum PVC dúk fjölnota íþróttahúshús á lóðinni Skólabraut nr. 2-4, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 3.911,4 m², 38.845,4 m³
Byggingarfulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um erindið.