12. maí 2016 kl. 09:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Ásbjörn Þorvarðsson byggingarfulltrúi
- Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Ásbjörn Þorvarðarson byggingafulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Umsókn um byggingarleyfi Litlikriki 3-5201604236
Jónas Bjarni Árnason Spóahöfða 17 sækir um leyfi til að breyta áðursamþykktum uppdráttum í samræmi við framlögð gögn. Nú er sótt um leyfi til að byggja úr steinsteypu þríbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílgeymslum í samræmi við breytt deiliskipulag. Stækkun 33,6 m2. 117,2 m3. Stærð eftir breytingu: 1. hæð 247,2 m2, 2.hæð 247,2 m2, 1627,2 m3.
Samþykkt.
2. Uglugata 15-17/Umsókn um byggingarleyfi201604210
AE-Tré ehf. Gvendargeisla 108 Reykjavík sækir um leyfi fyrir endursamþykkt og breytingum á áðursamþykktum uppdráttum fyrir parhús á lóðunum nr. 15 og 17 við Uglugötu samkvæmt framlögðum gögnum. Hæðarsetning húsa breytist og nú verði þau byggð úr forsteyptum einingum. Stærð húss nr. 15: Íbúð 152,0 m2 bílgeymsla 29,7 m2, 752,5 m3. Stærð húss nr. 17: Íbúð 151,0 m2 bílgeymsla 29,7 m2, 721,6 m3. Áðursamþykktir uppdrættir falli úr gildi.
Samþykkt.
3. Skuggabakki 8/Umsókn um byggingarleyfi201605012
Ingvar Magnússon Vesturfold 11 Reykjavík sækir um leyfi til að breyta útliti, innra fyrirkomulagi og byggja þakkvist á húsið nr. 8 við Skuggabakka í samræmi við framlögð gögn sem eru í samræmi við nýtt deiliskipulag svæðisins. Fyrir liggur skriflegt samþykki meðeigenda í húslengjunni. Stækkun húss 23,8 m2, 40,5 m3.
Samþykkt.
4. Desjamýri 5/Umsókn um byggingarleyfi201604289
Oddsmýri ehf. Réttarhvoli 11 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr bárustál- klæddu timbri geymsluhúsnæði á lóðinni nr. 5 við Desjamýri í samræmi við framlögð gögn. Stærð matshluta 1, 1376,5 m2, 4589,2 m3. Stærð matshluta 2, 1741,0 m2, 6971,2 m3.
Samþykkt.
5. Vefarastræti 8-14/Umsókn um byggingarleyfi201605024
Eignalausnir ehf Stórhöfða 25 Reykjavík sækja um leyfi til að byggja þriggja hæða 39 íbúða fjölbýlishús og bílakjallara úr steinsteypu á lóðinni nr. 8-14 við Vefarastræti í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Kjallari / bílakjallari 1866,5 m2, 1. hæð 1364,0 m2, 2. hæð 1375,8 m2, 3. hæð 1375,8 m2, 18266,9 m3.
Samyþkkt.
6. Vefarastræti 15/Umsókn um byggingarleyfi201603299
Byggingarfélagið Bakki Þverholti 2 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu 11 íbúða fjögurra hæða fjölbýlishús á lóðinni nr. 15-19 við Vefarastræti í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Hús nr. 15, 1.hæð 367,1 m2, 2.hæð 281,4 m2, 3.hæð 281,4 m2, 4.hæð 281,4m2, 3692,0 m3.
Samþykkt.
7. Vefarastræti 17 , byggingarleyfisumsókn201605042
Byggingarfélagið Bakki Þverholti 2 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu 11 íbúða fjögurra hæða fjölbýlishús á lóðinni nr. 15-19 við Vefarastræti í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Hús nr. 17, 1.hæð 368,1 m2, 2.hæð 281,4 m2, 3.hæð 281,4 m2, 4.hæð 281,4m2, 3707,4 m3.
Samþykkt.
8. Vefarastæti 19 - Umsókn um byggingarleyfi201604335
Byggingarfélagið Bakki Þverholti 2 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu 11 íbúða fjögurra hæða fjölbýlishús á lóðinni nr. 15-19 við Vefarastræti í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Hús nr. 19, 1.hæð 368,1 m2, 2.hæð 281,4 m2, 3.hæð 281,4 m2, 4.hæð 281,4m2, 3723,0 m3.
Samþykkt.