11. júlí 2014 kl. 14:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Ásbjörn Þorvarðsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði
Ásbjörn Þorvarðarson byggingafulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Háholt 14,umsókn um byggingarleyfi201407072
Pizza Pizza ehf Lóuhólum 6 Reykjavík sækir um leyfi til að setja upp loftræstirör fyrir Pizza Pizza í húsinu nr. 14 við Háholt í samræmi við framlögð gögn. Fyrir liggur skriflegt samþykki eigenda hússins.
Samþykkt
2. Laxatunga 171, umsókn um byggingarleyfi201406324
Einar B Hróbjartsson Friggjarbrunni 11 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja einnar hæðar einbýlishús og bílgeymslu úr steinsteypu á lóðinni nr. 171 við Laxatungu samkvæmt framlögðum gögnum. Stærð: Íbúðarrými 240,6 m2, bílgeymsla 48,4 m2, samtals 1164,4 m3.
Samþykkt.