9. júní 2015 kl. 18:00,
2. hæð Reykjafell
Fundinn sátu
- Hreiðar Örn Zoega Stefánsson (HÖZS) formaður
- Þórhildur Pétursdóttir (ÞP) varaformaður
- Svala Árnadóttir (SÁ) aðalmaður
- Jónas Þórir Þórisson aðalmaður
- Rafn Hafberg Guðlaugsson aðalmaður
- Kristín Ingibjörg Pálsdóttir (KIP) vara áheyrnarfulltrúi
- Aldís Stefánsdóttir (ASt) forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
- Hugrún Ósk Ólafsdóttir
Fundargerð ritaði
Hugrún Ósk Ólafsdóttir verkefnastjóri þjónustu- og samskiptadeild
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Bæjarlistamaður 2015201505005
Fyrir fundinum liggur að velja bæjarlistamann 2015. Tillögur sem borist hafa frá íbúum lagðar fram.
Menningarmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að Leikfélag Mosfellssveitar verði bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2015.