9. desember 2011 kl. 09:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Ásbjörn Þorvarðsson byggingarfulltrúi
- Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Ásbjörn Þorvarðarson byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Klapparhlíð 2-8 byggingarleyfi, 4 íb. Taka burt svalir, breyta svölum í glugga. (Reyndarteikningar)201112091
ÍAV Höfðabakka 9 Reykjavík sækir um leyfi fyrir reyndarteikningum, breyta gluggum í svefnherbergjum á 2. hæð og fella út franskar svalir á húsunum að Klapparhlíð 2 - 8 samkvæmt framlögðum gögnum.
Heildarstærðir húsanna breytast ekki.
Fyrir liggur skriflegt samþykki þinglýstra eigenda húsanna.
Samþykkt.